AFÞREYING Í NÁGRENNI ÞURRANESS

Það er ýmislegt hægt að gera sér til skemmtunar á meðan dvalið er í Þurranesi. Margir áhugaverðir og sögufrægir staðir eru í Dalasýslu og nágrenni.

Hægt að leggja land undir fót og fara í góða gönguferð í nágrenninu eða skella sér í bíltúr. Frá Þurranesi er hægt að skoða marga staði án þess að fara alltaf sömu leið og víða hægt að njóta útsýnis.

Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa undanfarið unnið að útgáfu á veglegum göngu- og útivistarkortum fyrir Vestfirði og Dali. Tvær sundlaugar eru í grennd við Þurranes. Byggðarsafn er að Laugum í Sælingsdal og svo er skemmtilegt að skoða Eiríksstaði í Haukadal. Það er jafnvel hægt að skella sér í siglingu á Breiðafirði.

Hægt er að komast í skotveiði, hafið samband fyrir nánari upplýsingar.

GÖNGULEIÐIR

  • Frá Þurranesi upp Belgsdal, yfir í Hvammsdal
  • Frá Þurranesi upp Belgsdal
  • Fram á Þverfellsbrún og niður Ölfusgjá (frekar brött leið!) að Þurranesi
  • Frá Þurranesi, upp Belgsdal og upp á Illvita
  • Frá Þurranesi að Laugum í Sælingsdal

TILLÖGUR AÐ BÍLTÚRUM

Ekið fyrir strandir

  • Skarðsströnd – Fellsströnd – Hvammssveit – Svínadalur (hringur).

Hringur um Gilsfjörð

  • Komið við í Ólafsdal, gengið upp að Gullfossi við Kleifar.

Ekið út á Barðaströnd að Brjánslæk

  • Siglt með Baldri yfir Breiðafjörð að Stykkishólmi og keyrt þaðan aftur í Dalina.
  • Jafnvel er hægt að stoppa í Flatey milli ferða.

Dalir – Snæfellsnes